-
Notifications
You must be signed in to change notification settings - Fork 3
New issue
Have a question about this project? Sign up for a free GitHub account to open an issue and contact its maintainers and the community.
By clicking “Sign up for GitHub”, you agree to our terms of service and privacy statement. We’ll occasionally send you account related emails.
Already on GitHub? Sign in to your account
log.piratar.is í sérstakt repo? #112
Comments
Ég er með þá glóru í kollinum að lögum Pírata sé breytt með PR. Það er langtíma verkefni. |
Það er ekkert tæknilega því til fyrirstöðu, en það býr til þríverknað sem
núna er tvíverknaður. Annarsvegar eru lögin í kosningakerfinu og hinsvegar
uppfærð handvirkt á vefnum. Ef þetta er sett í git repo er hætta á því að
óljósara verði hver sé authoritative útgáfan, sem og hver ætli að viðhalda
því.
…On Mon, Oct 22, 2018 at 8:40 AM Viktor Smári ***@***.***> wrote:
Getum við látið lög Pírata í sérstakt repo?
Hvað er að aftra okkur frá því?
—
You are receiving this because you are subscribed to this thread.
Reply to this email directly, view it on GitHub
<#112>, or mute the thread
<https://github.com/notifications/unsubscribe-auth/ABnqCYVuoFjyUExuIvrty7vVCIMP2oqwks5unYR7gaJpZM4Xy_wc>
.
|
Ég spyr því ég þekki ekki innra kerfi kosningakerfisins. |
Ég var með þá flugu í kollinum @helgihg að hægt væri að setja í lög Pírata að lagabreytingatillaga krefðist þess að gera PR. Ef það snið er samskonar markdown/up/whatever og vefurinn notar þá er þetta framkvæmt bara einu sinni. Ég átta mig á að það þarf að berjast fyrir þessari breytingu og það verður ekkert auðvelt. |
|
4. Ég veit það ekki. Hef bara tekið eftir því að einhver hefur passað að
það sé uppfært. Væntanlega er það framkvæmdaráð eða framkvæmdastjóri.
5. Það er alveg hægt að láta kosningakerfið keyra git-skipun, jájá, en
það er ekki nóg til að setja lögin og lagabreytingar í git. Fleiri en
ein breyting á lögum geta verið í atkvæðagreiðslu yfir langan tíma og
ekki er þá ljóst fyrirfram hvaða breyting nái inn og hver ekki.
Ennfremur styður kosningakerfið ekki margar breytingartillögur í einu
(m.a. vegna þess að það er mjög erfitt að útfæra það þannig að það sökki
ekki), og þess vegna eru lagabreytingar yfirleitt gerðar sem sjálfstæð
mál, og breytingarnar innfærðar handvirkt á vefinn.
Sjá dæmi: https://x.piratar.is/polity/1/agreements/
Þarna eru margar lagabreytingar sem breyta ekki lögunum í
kosningakerfinu, heldur eru bara mál til samþykktar eða synjunar. Það er
líklegra en ekki að fleiri en ein sé til meðferðar á sama tíma. Það þarf
síðan að innfæra breytingarnar handvirkt eftirá, jafnvel í
kosningakerfinu sjálfu. Þetta er vandamál sem væri kærkomið að finna
almennilega lausn á, en þegar ég hef ætlað að tækla þetta hef ég lent í
vandræðum með að útfæra stuðning við margar breytingartillögur í einu
þar sem sumum gæti verið hafnað og aðrar samþykktar, atkvæðagreiðslan
stendur yfir í langan tíma breytingartillögur geta jafnvel stangast á
við hvora aðra. Lausnin samkvæmt hefðbundnum fundarsköpum er að
róttækasta tillagan er afgreidd fyrst, og ef hún er samþykkt fellur sú
niður sem er minna róttæk, en ef hún er felld er greitt atkvæði um minna
róttæku tillöguna. Þetta er ekki svo auðvelt þegar atkvæðagreiðsla tekur
viku og ekki er hægt að sjálfvirkja ákvörðunina um hvaða tillaga sé róttæk.
Öll hjálp við að finna út úr þessu væri mjög vel þegin. Kannski er mér
að yfirsjást einhver snilldarlausn á þessu, en þessi git-draumur, eins
góður og hann er, er erfiðari úrlausnar en maður myndi halda vegna þess
að það er erfitt að forrita verklagið við hvernig breytingartillögur eru
afgreiddar.
…On 22.10.2018 19:27, Viktor Smári wrote:
4. Hver er ábyrgur fyrir því að færa úr kerfinu og á Wordpress síðuna?
5. Er hægt að láta kosningakerfið keyra scriptu sem pushar git commit á Github repo?
|
Þá held ég að besta byrjunin sé að:
Búið. |
Já, mér finnst það góð hugmynd, en hættan er sú að sá aðili sem uppfæri
vefinn sé ekki tæknimaður. Er hægt að gera það nógu einfalt til að
manneskja með *mjög* litla tölvuþekkingu geti sinnt því? Eða værir þú
til í að sjá um það? Hættan er sú að tölvunördar séu ekki tiltækir þegar
á þarf að halda. Það er reyndar rót stórs hluta vanda okkar almennt.
Það þyrfti a.m.k. að skrifa mjög nákvæmar og auðskiljanlegar
leiðbeiningar fyrir það. En ef vefsíðan birtir beint úr git repói, þá
væri geggjað að hafa þetta eins og þú lýsir.
…On 24.10.2018 18:35, Viktor Smári wrote:
Þá held ég að besta byrjunin sé að:
* Sá starfsmaður sem er ábyrgur fyrir að færa lagabreytinguna inná Wordpress svæðið, færi það í staðinn inn í Git repo.
* Ekki þarf að gera neitt við kosningakerfið.
* Aðalvefsíðan mun þá bara rendera úr repoinu.
Búið.
|
Þetta er í raun bara copy paste í eitthvað tiltekið skjal í vefumhverfi á Github. Engar skeljaskipanir eða neitt þannig. Að mínu mati jafnvel auðveldara en að setja þetta inní Wordpress.
Eigum við að prófa að búa til Prufu repo? @helgihg Ert þú ekki eini með réttindi til þess? |
Þetta er komið, en núna þarf helst að fjarlægja lögin af aðalsíðunni og benda frekar á log.piratar.is, svo við séum ekki að viðhalda lögunum á 2 stöðum. |
Getum við látið lög Pírata í sérstakt repo?
Hvað er að aftra okkur frá því?
Hérna eru hugmyndir um að skipta henni niður í fleirri smærri einingar: piratar/kerfi.piratar.is#5
The text was updated successfully, but these errors were encountered: